Tækifæri hf. - fjárfestingasjóður

Tækifæri hf. er fjárfestingasjóður sem fjárfestir í nýsköpun á Norðurlandi. Sjóðurinn er í eigu fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og vestra

Um Tækifæri

Tækifæri hf. er fjárfestingasjóður sem fjárfestir í nýsköpun á Norðurlandi. Sjóðurinn er í eigu fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og vestra en alls eru hluthafar 42. Stærstu eigendur Tækifæris eru KEA svf., Akureyrarbær og Lífeyrissjóðurinn Stapi. Hlutafé Tækifæris er 765 mkr. og hefur hann fjárfest fyrir um 400 mkr. á Norðurlandi í samræmi við markmið sín.

Fjárfestingarstefna

Stefna Tækifæris er að fjárfesta í nýsköpun eða nýmæli í atvinnulífi á Norðurlandi. Verkefni þurfa að fela í sér ávöxtunarmöguleika og arðsemi fjármagns með hliðsjón af þeirri áhættu sem í þeim felst. Verkefni þurfa að hafa hagrænt gildi, vera atvinnuskapandi og leiða til sem mestra margfeldisáhrifa á atvinnulíf svæðisins.

Þátttaka Tækifæris í verkefnum er einkum í formi fjárfestingar í hlutafé. Sjóðurinn er tilbúinn til að skoða hvaða fjárfestingartækifæri sem er, óháð eðli eða staðsetningu. Umsóknir sem berast sjóðnum eru lagðar fyrir stjórn til umfjöllunar og á grundvelli þess er ákveðið hvort fjárfest er í viðkomandi verkefni eða ekki.
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf