Tækifæri hf. - fjárfestingasjóður

Norðurskel ehf. Norðurskel er félag sem hefur það að markmiði að rækta og vinna bláskel (krækling) í Eyjafirði. Félagið er staðsett í Hrísey en

Fjárfestingar


Norðurskel ehf.
Norðurskel er félag sem hefur það að markmiði að rækta og vinna bláskel (krækling) í Eyjafirði. Félagið er staðsett í Hrísey en ræktunarsvæði félagsins eru við Hrísey sem víðar í firðinum. Eignarhlutur Tækifæris í félaginu er um 45%.

www.skel.is

Baðfélag Mývatnssveitar hf.
Baðfélagið rekur Jarðböðin við Mývatn sem er einstakur baðstaður í hjarta Mývatnssveitar. Vinsældir baðstaðarins hafa aukist ár frá ári og eru Jarðböðinn orðinn einn af vinsælli viðskomustað innlendra sem erlendra ferðalanga norðanlands árið um kring. Tækifæri er stærsti einstaki hluthafi í félaginu en eignarhlutur Tækifæris í félaginu er 31%.

www.jardbodin.is


Orkey ehf.
Orkey hefur það að markmiði að framleiða vistvænt eldsneyti. Áhersla fyrirtækisins nú er á framleiðslu lífdísils sem unnin er úr steikingarfeiti og annari olíu.

 

Molta ehf.
Félagið hefur það að markmiði að koma á fót moltunarverksmiðju á árinu 2008 sem kemur til með að lífgera sem mest af þeim lífræna úrgangi sem fellur til á svæðinu. Eignarhlutur Tækifæris í félaginu er um 5%.

www.molta.is

Fóðurverksmiðjan Laxá hf.
Laxá er fóðurfyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á fóðri til fiskeldis. Eignarhlutur Tækifæris í félaginu er um 6%.

www.laxa.is

Fiskeldi Eyjafjarðar hf.
Fiskeldi Eyjafjarðar var stofnað utan um rannsóknir og þróun á framleiðslu lúðuseiða en sú vinna hefur skilað sér í síaukinni framleiðslu á lúðuseiðum og eldislúðu til útflutnings. Eignarhlutur Tækifæris í félaginu er 5%.

www.fiskey.is


Formula Iceland ehf.
Formula Iceland rekur netleikinn Liðstjórinn á heimasíðunum www.formula.is og www.motorgames.eu. Eignarhlutur Tækifæris í félaginu er 54%.

www.formula.is


Þekkingarvörður ehf.
Þekkingarvörður er undirbúningsfélag fyrir stofnun háskóla á sviði endurnýtanlegra orkugjafa en skólinn var stofnaður árið 2007, RES - The school of renewable energy science. Eignarhlutur Tækifæris í félaginu er 15%.

www.res.is

 
Eldri verkefni sem Tækifæri hefur komið að:

Plasteyri ehf.
ITH ehf.
Globodent á Íslandi
Skrín ehf.
Stofnfiskur hf.
Hex-tækni ehf.
Vilko ehf.
MT-bílar ehf.
Bonus Ortho System ehf.
Ísgel ehf.
Frumkvöðlasetur Norðurlands ehf.
Martel ehf.
Íslenskur harðviður ehf.
Grænar lausnir ehf.
Haliotis á Íslandi ehf.
Gúmmívinnslan hf.
Skaginn ehf.
Element hf.
Stjörnu-Oddi ehf.
Ísstöðin hf.
x-18 ehf.
Aksjón ehf.
Sunneva Design ehf.

 

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf