24.03.11
Þann 15.-17. apríl nk. verður haldin Atvinnu- og nýsköpunarhelgi sem er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og atvinnulífsins.
Tækifæri er aðalstyrktaraðili helgarinnar en markmið hennar er að efla nýsköpun og atvinnulíf á svæðinu. Einstaklingar með
hugmyndir um atvinnu og nýsköpun koma saman til að skapa ný störf í samfélaginu, hvort heldur sem um er að ræða í starfandi
fyrirtækjum eða í nýjum fyrirtækjum. Þátttaka er ókeypis og opin öllum eldri en 18 ára.
Nánari upplýsingar um helgina er að finna á heimasíðu hennar, www.ana.is
