16.05.11
Tækifæri hefur ásamt öðrum fjárfestum stofnað Skelfélagið ehf. Félagið hefur keypt tilteknar eignir þrotabús
Norðurskeljar og er markmið félagsins að reka bláskeljarrækt og vinnslu í Hrísey. Framkvæmdastjóri félagsins er Jóhannes
Már Jóhannesson og ræktunarstjóri er Víðir Björnsson.
Auk Tækifæris eru helstu eigendur félagsins Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Huginn, Icemar, Oceanfish, Rafeyri o.fl.
