14.09.11
Tækifæri hefur undanfarna mánuði tekið þátt í undirbúningsverkefni fyrir sjóböð á Húsavík en auk
Tækifæris hafa komið að verkefninu Norðursigling, Orkuveita Húsavíkur, Saga Capital, Basalt arkitektar og Impra nýsköpunarmiðstöð.
Markmið undirbúningsverkefnisins er að kanna möguleika á uppbyggingu og rekstri sjóbaðslóns á Húsavíkurhöfða.
Nú hefur verið stofnað sérstakt félag um undirbúningsverkefnið, Sjóböðin ehf., og hafa bæst í hóp
þátttakenda Baðfélagið í Mývatnssveit og Trésmiðjan Rein. Nýta á næstu mánuði í frekari undirbúning
og rannsóknir, og ef niðurstöður gefa jákvæða mynd er stefnt að því að hefja fjármögnun og framkvæmdir á
árinu 2012-2013.
